Sýruduft

Eiginleikar:
Sýruduft er 100% súlfamínsýra.
Sýruduft er til aðallega ætlað til steinhreinsunar á mjólkurílátum og mjaltakerfum.
Sýruduft er einnig hentugt til sýruþvotta í öðrum greinum matvælaframleiðslu, t.d. í fiskimjölsverksmiðjum.

Notkun:
Blöndunarhlutfall er breytileg eftir aðstæðum. Notkunarhitastig er 20-80°C og verður árangurinn betri eftir því sem það er hærra.

Rörmjaltakerfi án þvottavéla
dugir í flestum tilfellum að nota 1,2 %w/w blöndu (125 g í 10 l af vatni) sem jafngildir 1,0 %v/v lausn (1 dl í 10 l af vatni), en við þykkar útfellingar kann að vera nauðsynlegt að tvöfalda magnið.
1. Látið þvottalausnina hringrása í 30 mínútur.
2. Tæmið lögnina með hreinsitöppum.
3. Skolið vel með köldu vatni.
4. Þvoið kerfið á venjulegan hátt.

Rörmjaltakerfi með þvottavél dugar í flestum tilfellum að setja 2-3 dl í hólf þvottavélarinnar, en við þykkar útfellingar kann að vera nauðsynlegt að nota tvöfalt það magn.
1. Stillið á venjulegt þvottakerfi og ræsið vélina.
2. Tæmið lögnina með hreinsitöppum.
3. Þvoið kerfið á venjulegan hátt.
Sýruþvo skal a.m.k. á 8 daga fresti, en þó í samráði við mjólkureftirlitsmann.

Vörunúmer: 161005 Umbúðir:5 kg fata